Við erum ekki eins og Borat! 10. október 2008 18:57 Fígúran Borat dregur upp ranga mynd af Kasakstan að mati landsliðsþjálfarans
Bernd Storck, landsliðsþjálfara Kasakstan, hlakkar mikið til að mæta enska landsliðinu á Wembley á morgun. Hann segir sína menn leggja mikið upp úr leiknum og virðist vera orðinn mjög þreyttur á Borat-bröndurum. Flestir reikna með því að enska liðið vinni öruggan sigur á Kasakstan á morgun, en liðið hefur unnið báða leiki sína til þessa í undankeppni HM. Landsliðsþjálfari Kasakstan hefur varað leikmenn sína við því að falla í stafi þegar þeir sjá stjörnurnar í enska liðinu. "Ef leikmenn mínir ætla að fara að skiptast á treyjum við menn eins og Beckham og Rooney strax eftir að flautað er af - munu þeir missa sæti sitt í liðinu. Ég get keypt treyjur handa þeim sjálfur ef þá vantar þær," sagði landsliðsþjálfarinn. Hann er orðinn hundleiður á því að fólk sjái Kasakstan með sömu augum og breski grínistinn Sacha Baron Cohen, sem kom landinu í fréttirnar á röngum forsendum með kvikmynd sinni um blaðamanninn Borat. "Þessi Borat mynd er bull og hefur ekkert með Kasakstan að gera," sagði Storck. "Hún dregur upp ranga mynd af þjóðinni. Við erum alvarleg þjóð og viljum ekki láta tengja okkur við þessa mynd." Ekki er hægt að segja að Kasakstan sé á öðrum endanum vegna leiksins stóra á morgun. "Það koma ekki út nema tvö eða þrjú dagblöð í viku og fólk fréttir lítið af fótbolta. Leikur okkar við Króata var ekki einu sinni sýndur í sjónvarpinu. Ég er hræddur um að fólk myndi ekki einu sinni frétta af því þó við næðum hagstæðum úrslitum á móti Englendingum, en ég vona að fleiri fari að mæta á leiki okkar," sagði þjálfarinn.
Mest lesið Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Fótbolti Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Enski boltinn Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik Enski boltinn Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Enski boltinn Barnastjarna á Álftanesið Körfubolti Segir Ísland eiga tvo af tíu bestu í heimi Handbolti Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Enski boltinn Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Enski boltinn Anderson henti Van Gerwen úr leik Sport Senegal vann riðilinn en missti Koulibaly í bann Fótbolti Fleiri fréttir Farin frá Braga eftir aðeins hálft ár Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Arsenal rústaði Villa og náði fimm stiga forskoti Neyðarlegt jafntefli United gegn Úlfunum Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Fékk á sig víti í mögulegum kveðjuleik Senegal vann riðilinn en missti Koulibaly í bann Nígeríumenn snöggir að nýta sér liðsmuninn og fengu fullt hús „Þetta er rebbabragð sem ég vissi nú reyndar ekki að hann kynni“ Elsti atvinnumaður heims fer í nýtt lið Nýi þjálfarinn fær strax að njóta krafta Orra Liðið sem gerir stólpagrín að xG Þjálfari Liverpool í föstum leikatriðum látinn fara Arnar vill læra af mistökum gullkynslóðarinnar og gera landsliðið sjálfbærara Gleymdi Íslendingurinn fékk loks að spila: „Ég er ekki vitlaus“ „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ Fótboltaþjálfari og þrjú börn hans létust í jólafríinu „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Ekki góð ferð til Rómarborgar í kvöld Heimamenn í ham og El Kaabi skoraði aftur með hjólhestaspyrnu Sarri gekkst undir hjartaaðgerð Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Hvíldu Mo Salah en unnu samt riðilinn Beint frá Blikum til Boston í bandarísku deildinni Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Sjá meira