Viðskipti erlent

Icesave sparifjáreigendur gefa sig ekki fram

Ríflega 24 þúsund sparifjáreigendur sem áttu innistæður á Icesave reikningum Landsbankans í Bretlandi hafa ekki haft samband við sjóðinn enn. Innistæður þeirra nema um 65 milljörðum íslenskra króna. Sparifjáreigendurnir hafa til 31. desember til að gefa sig fram.

Eftir það munu þeir þurfa að sækja formlega um og mun millifærsla á sparifénu þá taka um 6 vikur. Alls hefur sjóðurinn greitt út tæplega 600 milljarða íslenskra króna til tæplega 215.000 reikningseigenda Icesave í Bretlandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×