Spiluðu póker með líf og dauða Nyhedsavisen til síðustu stundar 24. september 2008 10:47
Íslenskar milljónir, undirferli, Mecom-stjórinn David Montgomery, kínverskur auðmaður og gömul Opel Corsa bifreið með bilaðan hljóðkút. Þetta eru höfuðatriðin í frásögn Jyllands-Posten um pókerinn sem spilaður var um líf og dauða Nyhedsavisen til síðustu stundar útgáfunnar. Jyllands-Posten hefur skrifað ítarlegar úttektir á endalokum Nyhedsavisen í þessari viku. Þar kemur m.a. fram að þeir Morten Lund aðaleigandi Nyhedsavisen og David Montgomery eigandi Mecom, sem gefur út Berlingske Tidende og fríblaðið Urban, hafi rætt ítrekað saman áður en ákveðið var að leggja Nyhedsavisen niður. Fram hefur komið á Business.dk að Morten Lund hafði unnið að því að fá Mecom til að senda rúma 2 milljarða kr. til ensks félags sem er í eigu vinar hans Morten Söndergaard Petersen gegn því að útgáfa Nyhedsavisen yrði lögð niður. Ekki er hægt að túlka þetta öðruvísi en að svíkja átti aðra eigendur Nyhedsavisen og lánadrottna um þessa upphæð. Þetta mál er nú til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Kaupmannahöfn. David Montgomery eigandi Mecom og Lisbeth Knudsen forstjóri Berlinske Media segjast aldrei hafa séð þessa tillögu frá Morten Lund. Þau segja aðeins að samningaviðræður við Lund hafi farið út um þúfur og að stuttu síðar hafi Nyhedsavisen verið lagt niður. Þá kemur til sögunnar kínverskur auðmaður Richard Li að nafni. Hann mun hafa verið volgur fyrir því að skjóta nýju fé inn í Nyhedsavisen og var "draugur hans á sveimi um útgáfuna" eins og það er orðað i eina tvo mánuði en ekkert kom út úr því. Og í lokin lét Morten Lund BMW-bílinn sinn standa heima og fékk í staðinn lánaðan gamlan Opel Corse með bilaðan hljóðkút hjá nágranna sínum. Á þeim bíl ók hann til starfsmanna Nyhedsavisen til að tjá þeim að útgáfan yrði lögð niður.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira