Microsoft mætir erfiðleikum af æðruleysi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. nóvember 2008 07:55 Steve Ballmer, búinn að setja upp hörkulegri svipinn og klár í slaginn.
Hugbúnaðarrisinn Microsoft finnur fyrir breyttum tímum eins og aðrir og þar á bæ búast menn við að hægt verði á mannaráðningum á næstunni. Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, lét það uppi á hluthafafundi í gær að sú stefna fyrirtækisins að draga úr ráðningum nýrra starfsmanna yrði í gildi fram yfir mitt ár 2009 hið minnsta. Microsoft notast ekki við almanaksárið sem fjárhagsár heldur nær fjárhagsár þess frá miðju sumri til jafnlengdar næsta árs og er því ekki óalgengt að rekstraráætlanir miðist við þann tíma. Ballmer sagði á fundinum, sem haldinn var í Washington á sama tíma og stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fundaði þar í gær, að Microsoft hefði alls ekki í hyggju að hætta ráðningum algjörlega heldur yrðu þarfir hverrar deildar fyrir sig skoðaðar gaumgæfilega. Þá kom það engum á óvart þegar Ballmer sagði að Microsoft væri vel í stakk búið til að takast á við efnahagsleg átök og sterk fjárhagsstaða fyrirtækisins gerði því kleift að styrkja samkeppnisstöðu sína með auknum fjárfestingum á sviði rannsókna og þróunar. Stjórnarformaðurinn Bill Gates var einnig á fundinum og sagði frá ýmsum tækninýjungum í stað þess að velta sér upp úr kreppuhjali. Hann kynnti þá ákvörðun sína að draga úr starfshlutfalli sínu en sló um leið á létta strengi og sagði að ef hann hætti alveg hjá Microsoft myndi hann samt aka þangað á morgnana af gömlum vana.
Mest lesið Gengi Novo Nordisk steypist niður Viðskipti erlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Viðskipti innlent Erfitt að vera mikið einn í vinnu og án mikilla samskipta Atvinnulíf Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila Viðskipti innlent „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira