Viðskipti innlent

Epal og Liborius saman í miðbæinn

Annas Sigmundsson skrifar
Hildur Björgvinsdóttir Starfsmaður í nýju versluninni. Verslunin er bæði ætluð Íslendingum og erlendum ferðamönnum.
fréttablaðið/gva
Hildur Björgvinsdóttir Starfsmaður í nýju versluninni. Verslunin er bæði ætluð Íslendingum og erlendum ferðamönnum. fréttablaðið/gva

Ekki eru allir búnir að missa trúna á Laugaveginum sem verslunargötu. Fyrir stuttu opnuðu fyrirtækin Epal og Liborius nýja verslun á Laugavegi 7. Epal hefur fram að þessu verið með verslun í Skeifunni og fríhöfninni í Leifsstöð.

,,Okkur fannst það skemmtilegur leikur að fara niður á Laugaveg,“ segir Ingibjörg Friðjóns­dóttir, sölustjóri hjá Epal. Spurð um markhópinn segir hún að búðin á Laugaveginum sé ætluð öllum. ,,Bæði Íslendingum og erlendum ferðamönnum,“ segir Ingibjörg.

Hún segir að viðbrögðin við nýju búðinni hafi verið góð en þó séu einungis þrjár vikur síðan búðin var opnuð.

Epal og Liborius deila með sér um 120 fermetra húsnæði. Þar er seld gjafavara frá Epal, nytja­hlutir og skrautmunir fyrir heimilið. Liborius býður hátískufatnað fyrir dömur og herra frá hönnuðunum Christian Dior í Frakklandi, Ann Demeulemeester í Belgíu, Number (N)ine og Undercover í Japan sem dæmi. Einnig fást í versluninni sérvalin ilmvötn og ýmiss konar fylgihlutir, meðal annars úr silki, kasmírull, leðri og silfri, að ógleymdum svörtum demöntum.

Flestar vörurnar eru til í takmörkuðu upplagi og einungis í boði í tengslum við árstíðabundna framleiðslulínu hönnuðarins, og eru sagðar afar eftirsóttar víðs vegar um heim.

Liborius fylgir einnig fordæmi kunnra verslana í París sem kynna reglulega sérvalin bókmenntaverk. Minnisbók Sigurðar Pálssonar var fyrst kynnt þar og nýlega var bók Charlies Strand, Project Iceland, kynnt hjá Liborius og eru allar bækur eru áritaðar af höfundi.

Þessi nýja verslun er ekki í einu af elstu húsum á Laugaveginum því að húsið að Laugavegi 7 var reist snemma á 8. áratugnum undir starfsemi Landsbankans. ,,Nú bjóða menn viðskiptavini Epal og Liborius velkomna og vona að þeir gangi út aftur ekki óglaðari en úr bankanum forðum,“ segir Ingibjörg að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×