Matur

Eplakaka

Deigið í kökuna

500 gr fínt spelt hveiti eða venjulegt hveiti

500 gr smjör hefur fengið að standa í hálftíma eða notið 1,5dl ólífu olíu ístaðin

10 gr salt

250 ml ískalt vatn

Aðferð

Hellið hveitinu á borðplötuna og búið til gat í miðjuna á hveiti hrúgunni.

Skerið smjörið í litla teninga og setjið inn í hveitið ásamt salti nuddið hveitinu og smjörinu inn milli fingrana, þegar smjörið nænast komið sama við hveitið hellið inn ís köldu vatni og hnoðið þessu saman vefjið þetta síðan í plast filmu og geymið í kæli í sirka 20 mínútur.

Rúllið þá deiginu út hringlaga og aðeins stærra hring en pannan sem á að nota.

4-5 stk grænepli skræld og kjarni hreinsaður

1,5dl hlynsíróp

Aðferð

Hellið sírópinu í pönnu sem má fara inn í heitan ofn. Sjóðið síðan sírópið aðeins niður eða þar til það er farið að þykkna. Setjið þá eplin í og snúið þeim þannig að sárið snúi upp. Fáið aðeins lit á þau en passið jafnframt að brenna ekki sírópið.

Takið síðan pönnuna af hitanum og komið deiginu fyrir ofan á eplunim. Þrystið síðan deiginu aðeins niður með hliðunum á pönnunni. Setjið inn í 180°c heitan ofninn og bakið í sirka 20 mínútur.

Á meðan hafið kláran kökudisk sem er svo settur ofan á pönnuna þegar hún kemur úr ofninum og henni síðan snúið snöggt við passa bara að hafa stykki á disknum til að brenna sig ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×