Segir norræna banka geta bjargað þeim íslensku Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. október 2008 08:17
Bankar á Norðurlöndunum geta bjargað íslensku bönkunum ef þeir vilja segir Erik Alsaker hjá greiningardeild Nordea-bankans í viðtali við norska ríkisútvarpið. Alsaker segir að nóg sé til af peningum í bönkum Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur og að þessi þrjú stóru lönd ættu ekki að eiga í neinum vandræðum með að rétta íslenskum bönkum hjálparhönd þegar illa árar. Norska ríkisútvarpið vitnar einnig í Ingólf Bender, forstöðumann greiningardeildar Glitnis, sem segir að seðlabankar Norðurlandanna séu bundnir samningum um innbyrðis aðstoð og hrun Glitnis muni þannig hafa áhrif í Noregi. Útvarpið segir frá kaupum ríkisins á Glitni á mánudag og lækkun matsfyrirtækisins Fitch á lánshæfi íslensku bankanna í gær. Enn fremur segir það hruni íslenskra banka hafa verið spáð lengi, viðskiptabankar Íslands séu orðnir það stórir að Seðlabankinn hér geti lent í vandræðum þurfi að koma þeim til bjargar. Þá segir Alsaker að í tilfelli Noregs sé þetta ekki bara spurning um að bjarga litlum bróður sem hefur eytt um efni fram, Ísland standi Noregi nær en hin löndin og því standi það Norðmönnum nær að rétta hjálparhönd.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira