Enn óvíst um lán til bandarísku bílaframleiðandanna 14. desember 2008 21:30
Enn hafa bandarísk stjórnvöld ekki tekið neinar ákvarðanir um lán til handa stærstu bílaframleiðendunum þar í landi. Þeir eiga allir við mikla erfiðleika að etja vegna fjármálakreppunnar. Ekki er búist við því að niðurstaða náist í málið á morgun, enda er Bush Bandaríkjaforseti í heimsókn í Írak. Búist er við því að lausafé General Motors og Chrysler framleiðandanna verði uppurið innan fárra vikna, komi ekki til opinber aðstoð. Þingmaður repúblikana í Tennesse segir að stjórnvöld viti ennþá ekki hvernig þau eigi að snúa sér í málinu. Þá segist talsmaður verkalýðshreyfingar bílaframleiðanda að samtökin hafi ekki fundað með stjórnvöldum um málið. Búist er við því að opinber aðstoð myndi gagnast General Motors og Chrysler. Enn sé rætt um hversu mikið fé eigi að lána þeim og hvaða skilyrði verði fyrir láninu. Talsmenn Ford framleiðandanna segjast hafa nægjanlegt fjármagn til að lifa af árið 2009 en þeir báðu fulltrúadeild Bandaríkjaþings um aukið fjármagn ef að frekari áföll yrðu á fjármálamörkuðum. AP fréttastofan greindi frá.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira