Viðskipti erlent

Yfirmenn Deutsche Bank hafna bónusgreiðslum

Æðstu yfirmenn Deutsche Bank hafa ákveðið að hafna bónusgreiðslum til sín upp á fleiri milljónir evra eða nær milljarð kr.. Með þessu ætla þeir að sýna samstöðu með almennu starfsfólki bankans á þeim erfiðu tímum sem ríkja í fjármálalífi Evrópu.

Josef Ackermann forstjóri Deutsche Bank segir að hann geti vel lifað án þess að fá nokkrar milljónir evra í bónusgreiðslur frá bankanum. Í samtali við blaðið Bild am Sonntag segir Ackermann að hann hafi tilkynnt stjórn bankans að hann afsali sér öllum bónusgreiðslum fyrir árið í ár. Með þessu vilji hann persónlega sýna samstöðu með almennum starfsmönnum bankans.

Í kjölfar þessa hafa allir aðrir æðstu stjórnendur bankans ákveðið að fara að dæmi Ackermann sem og meðlimir stjórnar hans.

Ekki er vitað um hve mikla upphæð er að ræða á þessari stundu en til samanburðar má nefna að í fyrra námu bónusgreiðslurnar til Ackermann rúmlega 12 milljónum evra eða um 1,8 milljörðum kr.. Algengar bónusgreiðslur til annarra í háum stjórnunarstöðum námu tæplega 5 milljónum evra eða um 750 milljónum kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×