Óttaðist að Kaupþing ynni skemmdarverk á Storebrandsölunni 28. nóvember 2008 13:42
Skilanefnd Kaupþings á Íslandi og skiptastjóri Kaupþings í Noregi eru komin í hár saman vegna sölunnar á 5,5% hlut Kaupþings í Storebrand. Samkvæmt frétt á vefsíðunni E24.no óttast skiptastjórinn að skilanefndin vinni skemmdarverk á sölunni. Eins og kunnugt er af fréttum á visir.is var framangreindur hlutur settur til sölu síðdegis í gær. Salan var svo stöðvuð í morgun vegna deilu um hvort aðilinn hefði rétt á að selja hlutinn. Bjarne Borgersen skiptastjóri Kaupþings í Noregi segir í samtali við E24.no að þeir séu ekki í vafa um að þrotabúið hafi rétt á að selja hlutinn en... "það séu Íslendingarnir ekki sammála um," segir Bjarne. Hluturinn, sem metinn er á sex milljarða kr. átti að vera í sölu fram í næstu viku. Þessi nýja staða hefur leitt til þess að þrotabúið óttaðist að skilanefnd Kaupþings myndi vinna skemmdarverk á sölunni. "Við óttuðumst að áhættan væri of mikil fyrir markaðinn," segir Bjarne um ástæðu þess að salan var stöðvuð. "Og við óttuðumst að skilanefndin á Íslandi myndi reyna að stöðva söluna þannig að við gætum ekki staðið við skuldbindingar okkar." Ekki náðist tal af Steinari Þór Guðgeirssyni við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira