Viðskipti erlent

GM hættir framleiðslu Saab

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Margir líta á gamla Saab 900 sem hinn eina sanna. GM framleiddi hann þó aldrei.
Margir líta á gamla Saab 900 sem hinn eina sanna. GM framleiddi hann þó aldrei. MYND/Saabhistory.com

Saab er meðal þeirra bílategunda sem bandaríski bílarisinn General Motors hyggst hætta framleiðslu á haldi fyrirtækið á annað borð velli.

Það veltur á því hvort ríkissjóður Bandaríkjanna verður við ósk yfirmanna General Motors um 12 milljarða dollara lán til bjargar fyrirtækinu, sem rambar á barmi gjaldþrots. Verði General Motors gjaldþrota bætast nokkrir tugir þúsunda fólks á bandarískar atvinnuleysisskrár.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×