Búðaþjófnaður eykst í Bretlandi - mest stolið af lærum hjá Iceland 10. nóvember 2008 13:30
Búðaþjónfaður hefur færst mjög í aukanna í Bretlandi á undanförnum mánuðum. Tilvikum hefur fjölgað um þriðjung það sem af er árinu. Vinsælast er að stela lambalærum í verslunarkeðjunni Iceland sem er að hluta til í eigu Baugs. Í frétt um málið í The Financial Times (FT) segir að menn óttast að ástandið eigi enn eftir að versna eftir því sem harðnar á dalnum í bresku efnahagslífi. Hjá Tesco-verslunarkeðjunni voru yfir 43.000 viðskiptavinir staðnir að búðaþjófnaði á fyrri helmingi ársins sem er 36% aukning frá sama tímabili í fyrra. Það sem vekur áhyggjur er að ekki er lengur verið að stela lúxusvörum í miklu magni heldur nauðsynlegum matvælum. Þetta bendir til að þjófnaðirnir stafi af nauð en ekki græðgi. Fram kemur í spjalli FT við Duncan Miles yfirmann öryggisgæslu Iceland-verslananna að lambalæri sé vinsælasti hluturinn sem stolið sé úr verslunum þeirra. Þar á eftir fylgi ostur, beikon og kaffi. "Það er mest stolið af lambalærum hjá okkur þar sem auðvelt er að koma þeim í verð á krám og veitingahúsum. Og fólk er alltaf á höttunum eftir kjöti," segir Miles.
Mest lesið Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Festi hagnast umfram væntingar Viðskipti innlent Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Fleiri fréttir Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira