Kaliforníubúar óttast nú íslensk örlög 12. desember 2008 09:43
Kaliforníubúar óttast nú að lenda í sömu örlögum og Íslands hvað efnahag ríkisins varðar. Kalifornía er tíunda stærsta hagkerfi heimsins en í febrúar mun ríkið verða uppiskroppa með fé að öllu óbreyttu og þar með sé ríkið komið í "efnahagslegan heimsenda" eða financial Armageddon" eins og það er orðað. Samkvæmt frétt á Timesonline um málið aukast skuldir ríkissjóðs Kaliforníu um 1,7 milljón dollara, eða um 200 milljónum kr., á hverjum klukkutíma sem líður. Ef Kalifornía verður gjaldþrota verða afleiðingar þess af áður óþekktri stærðargráðu í fjármálakreppunni sem nú ríkir. Í ríkinu eru efnahagslegar aflvélar á borð við Silicon Valley, Hollywood, Napa Valley, Long Beach og hergagnaframleiðslusvæðin í Los Angels, San Diego og Mojave eyðimökrin. Skuldir Kaliforníu nema nú 1,7 trilljónum dollara eða um 200 þúsund milljarðar kr.. Ríkið er með verst lánshæfismatið af öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna. Þessi staða þykir sérlega auðmýkjandi fyrir Arnold Schwarzenegger ríkisstjóra sem nú gegnir öðru kjörtímabili sínu. Á sínum tíma tók hann við Kaliforníu í svipuðu ástandi eftir efnahagslega óstjórn demókrata. Lofaði Arnold að snúa dæminu við og tókst það á fyrra kjörtímabili sínu. En nú er vandinn mættur aftur. Eftir því sem lánshæfi ríkisins hefur versnað hefur kostnaður við lántökur aukist og nú er svo komið að fáir ef nokkrir vilja lána ríkissjóði Kaliforníu. Arnold hefur lýst yfir efnahagslegu neyðarástandi í ríkinu og vinnur nú hörðum höndum að finna lausn á þessu gríðarlega vandamáli.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira