EPCOS eignast 60 % hlut í Becromal á Íslandi 9. október 2008 19:31
Þýski raftækjaframleiðandinn EPCOS kaupir Becromal SpA Ítalska fyrirtækið Becromal SpA keypt af þýska raftækjaframleiðandanum EPCOS. EPCOS eignast 60 prósent hlut í Becromal á Íslandi, en 40 prósent hlutur verður áfram í eigu íslenska orkufyrirtækisins Strokkur Energy. Útflutningstekjur af starfsemi Becromal á Íslandi verða um 110 milljónir Bandaríkjadala í fyrsta áfanga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Becromal á Ísland. Þar segir ennfremur: Ítalska fyrirtækið Becromal SpA hefur verið selt til þýska raftækjaframleiðandanum EPCOS, sem mun einnig eignast hlut Becromal SpA í Becromal á Íslandi ehf. Íslenska fyrirtækið Strokkur Energy mun hér eftir sem hingað til eiga 40 prósent hlut í Becromal á Íslandi. „EPCOS er afar sterkt alþjóðlegt fyrirtæki og hefur um árabil verið eitt af stærstu og öflugustu tæknifyrirtækjunum Þýskalands," segir Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Strokks. Hann bætir því við að þar sem EPCOS hefur um nokkra hríð verið einn af helstu viðskiptavinum Becromal hafi stjórnendum EPCOS þótt Becromal vera álitlegur fjárfestingakostur. Þrátt fyrir þessar breytingar á eignaraðild Becromal á Íslandi mun það á engan hátt tefja fyrir uppbyggingu aflþynnuverksmiðju í Krossanesi á Akureyri, sem hefja á framleiðslu árið 2009. Enn fremur munu ráðningar starfsfólks verksmiðjunnar halda áfram með eðlilegum hætti. „Uppbygging verksmiðjunnar gengur ákaflega vel og íslenski verktakinn Húsbygg hefur unnið þrekvirki undanfarnar vikur. Áætlanir gera ráð fyrir að verksmiðjan taki til starfa um áramótin og það hefur ekkert breyst," segir Eyþór. Hjá EPCOS starfa um 20.000 manns á 20 mismunandi starfsstöðvum út um allan heim. Verksmiðjur og hönnunarstöðvar fyrirtækisins má meðal annars finna í Evrópu, Norður og Suður Ameríku og Asíu. Tekjur fyrirtækisins á síðasta ári voru 1.4 milljarðar evra eða 210 milljarðar íslenskra króna. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að útflutningstekjur af starfsemi Becromal á Íslandi verði um 110 milljónir Bandaríkjadala.
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira