Klámdrottning verður forstjóri í eigin fyrirtæki 11. desember 2008 12:56
Danska klámmyndastjarnan fyrrverandi, Katja Kean, er orðin forstjóri í eigin fyrirtæki og gengur rekstur þess með afbrigðum vel. Í dag ber Katja nafnið Sussi La Cour sem er raunar upprunalegt nafn hennar. Sussi hætti í klámmyndabransanum árið 2004 og skömmu síðar hóf hún að hanna og selja eigin línu af kvennundirfötum undir nafninu Katja K. Í fyrstu seldi hún undirföt sín í aðrar verslanir en á nú sjálf eigin búðir í Kaupmannahöfn. Í umfjöllun Jyllands-Posten um fyrirtækið Katja K segir Sussi að frá upphafi hafi hún lagt áherslu á vöruna sem hún hannar og framleiðir og aldrei reynt að nota fortíð sína sem vinsæl klámmyndastjarna sér til framdráttar í þeim efnum. Hún veitir ekki viðtöl lengur um fortíð sína en talar við hvern sem er um viðskiptalíf sitt. Samhliða því hefur hún breytt útliti sínu, farið úr því að verða ljóska og litað hár sitt dekkra. Og nú gengur hún um með gleraugu í stað þess að nota linsur. Þetta gerir hún, að sögn Jyllands-Posten til að leggja áherslu á hina nýju persónu sína og til að undirstrika að hún er núna forstjórinn Sussi La Cour en ekki Katja Kean.
Mest lesið Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira