SA kynnir brýn úrlausnarefni í kreppunni 21. nóvember 2008 14:40
Í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu fyrirtækja sem nú er unnið að hafa Samtök atvinnulífsins (SA) tekið saman áhersluatriði um brýn úrlausnarefni. Þau má nálgast á vef SA en þau snúa m.a. að gjaldeyrisviðskiptum, samskiptum við erlenda lánadrottna, lækkun vaxta, uppstokkun atvinnulífsins, nýsköpun og skapandi hugsun, kjarasamningum og skilyrðum fyrir fjárfestingar Meðal þess sem SA leggur áherslu á er að koma IMF prógramminu í gang. Fá lánsfé frá sjóðnum og erlendum ríkjum/seðlabönkum til að koma hreyfingu á gjaldeyrisviðskiptin. Koma gjaldeyrisviðskiptum í bönkum í eðlilegt horf. Gera gjaldeyrisreikninga virka. Ná hagkvæmni í gjaldeyrisviðskiptin. Erlendir lánadrottnar fái hlutabréf eða skuldabréf með breytirétti í hlutafé í nýju bönkunum gegn hluta af kröfum sínum til þess að stuðla að eðlilegum lánsviðskiptum innlendra aðila við erlenda banka. Styðja við hugsanleg kaup innlendra aðila á erlendum banka í því skyni að ná erlendu lánsfé til landsins. Eðlilegir fjármagnsstraumar til og frá landinu eru frumskilyrði þess að gengi krónunnar geti hækkað og náð stöðugleika í ásættanlegu jafnvægi. Hröð lækkun stýrivaxta er nauðsynleg samhliða hækkandi gengi. Bankar þurfa að nálgast fyrirtæki í skuldavanda með það að markmiði að fyrirtæki stöðvist ekki ef þau hafa lífvænlega framlegð og getu til að standa undir lánum og fjárfestingu. Þetta getur þýtt afskriftir af skuldum og/eða endurfjármögnun, m.a. með eiginfjárframlagi. Almennt verður að miða við að núverandi eigendur og stjórnendur fyrirtækja, þar sem hlutafé er afskrifað, geti starfrækt þau áfram og komið að þeim á ný sem eigendur eftir því sem við á enda réttlæti rekstrarleg frammistaða slíkt.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira