Heimsmarkaðsverð á olíu fer hríðlækkandi 12. nóvember 2008 11:08
Heimsmarkaðsverð á olíu fer hríðlækkandi. Verð á Brent-olíu úr Norðursjó fór niður í 54 dollara á markaðinum í London í morgun og hefur ekki verið lægra síðan í ársbyrjun 2007. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að verð á hráolíu fór í gær niður fyrir 59 dali á markaði í New York, í fyrsta sinn í meira en 20 mánuði. Í morgun stóð hráolíutunnan í 58,45 bandaríkjadal. Verðið á Brent Norðursjávarolíu var hinsvegar komið niður í 54 dali í Kauphöllinni í London í morgun og hefur þá ekki verið lægra síðan í ársbyrjun 2007. Lækkunina má rekja til gruns um að Alþjóðaorkustofnunin (IEA) muni skera niður spá sína um orkueftirspurn fyrir árið 2009 vegna versnandi hagvaxtarhorfa á heimsvísu. Alþjóðaorkustofnunin samhæfir orkustefnu 28 þróaðra ríkja og birtir stofnunin efnahagsspá sína í dag. Verð á flestum hrávörum hefur lækkað mikið undanfarna tvo mánuði eftir mikla undangengna verðhækkun. Olían er þar ekki undanþegin. Í byrjun september kostaði hráolíutunnan tæplega helmingi meira en hún kostar í dag. Lækkandi hrávöruverð á heimsvísu hefur orðið til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, sem hefur gert seðlabönkum auðveldara um vik að lækka stýrivexti sína til að bregðast við versnandi hagvaxtarhorfum.
Mest lesið Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Festi hagnast umfram væntingar Viðskipti innlent Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Viðskipti innlent Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Gengi Novo Nordisk steypist niður Viðskipti erlent „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Fleiri fréttir Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira