Búið að leysa fiskkarakreppuna á Vestfjörðum 12. nóvember 2008 14:47
Flutningur á fiskikörum til Vestfjarða er aftur kominn í samt horf eftir að forsvarsmenn Umbúðamiðlunar, Samskipa, Eimskipa og fiskmarkaða sátu fund í gærkvöldi og ákváðu að reyna að vinna að lausn á þeim vanda sem skapaðist. Fjallað er um málið á vefsíðu Bæjarins Besta í dag. Vandamálið kom upp þegar Umbúðamiðlun neitaði að greiða gjald sem Samskip og Eimskip settu á vegna flutnings á tómum körum frá Vestfjörðum en sú þjónusta hafði áður verið innifalin í flutningskostnaði. „Við ætlum að vinna að endurskipulagningu á kerfinu og okkur þykir ávallt erfitt þegar þriðji aðili verður fyrir tjóni eða vandræðum vegna einhverra aðgerða. Við munum skoða alla þá galla og kosti sem fylgja flutningakerfinu innanlands og utanlands. Það eru allir flutningsaðilar að flytja kör í dag," segir Ólafur Ólafsson, framkvæmdastjóri Umbúðamiðlunar í samtali við bb.is. Hjá Fiskmarkaði Bolungarvíkur og Suðureyrar var útlitið ekki gott í gær vegna skorts á körum og leit út fyrir að loka þyrfti markaðnum í dag hefðu kör ekki borist vestur að söng Samúels Sigurjóns Samúelssonar, verkstjóra Fiskmarkaðsins. „Við þurftum ekki að stoppa í morgun enda engin bátur kominn í land. Við eigum sextíu kör eins og er en ef kör hefðu ekki borist okkur í dag hefðum við þurft að loka. Ég var að heyra í flutningsaðilum fyrir sunnan og að þeirra sögn eru körin á leiðinni vestur," segir Samúel.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur María Klara til Athygli Viðskipti innlent Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira