Ólafur og Vilhjálmur ræddu myndun nýs borgarstjórnarmeirihluta 21. janúar 2008 10:30 Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans.
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F listans, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, funduðu um helgina um myndun mögulegs nýs borgarstjórnarmeirihluta. Ekki er vitað hversu langt viðræðurnar eru komnar eða hvort myndun nýs meirihluta verði að veruleika á næstu dögum. Samkvæmt heimildarmönnum Vísis eru þreifingar milli F-lista og Sjálfstæðisflokks ekki raktar til deilu milli þeirra Björns Inga Hrafnssonar og Guðjóns Ólafs Jónssonar, í Framsóknarflokknum, sem greint var frá um helgina. Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur var myndaður af Samfylkingu, VG, Framsóknarflokknum og F-lista í mikilli skyndingu í byrjun október á síðasta ári þegar samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sprakk vegna REI-málsins svokallaða. Myndun nýja meirihlutans var hraðað svo mjög að ekki tókst að gera málefnasamning. Hefur hann enn ekki verið búinn til. Þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon áttu í meirihlutaviðræðum strax eftir síðustu kosningar en þær viðræður runnu út í sandinn vegna deilna um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hvorki náðist í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson né Ólaf F. Magnússon við vinnslu þessarar fréttar. Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi F-listans, sagðist hafa rætt við Ólaf í morgun en þetta mál hefði ekki borið á góma í þeirra samtali.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Fleiri fréttir Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Sjá meira