Sterling seldi flugmiða tæpum klukkutíma fyrir gjaldþrotið 29. október 2008 11:16
Í ljós hefur komið að Sterling seldi flugmiða allt þar til aðeins klukkutíma áður en félagið tilkynnti um gjaldþrot sitt. Greint er frá átakanlegri reynslu Karin Barmbo frá Svíþjóð í Jyllands-Posten. Móðir hennar býr á Spáni og fékk hjartaáfall í gærkvöldi. Karin pantaði því miða hjá Sterling til Alicante og átti flugið að verða klukkan 11 í morgun að dönskum tíma. Í nótt átti Karin í erfiðleikum með að fá staðfesta miðapöntun sína þar sem tölvukerfi Sterling var hætt að virka. Karin náði svo sambandi við farþegaþjónustu Sterling kl. 01.30 í nótt. Þar fékk hún staðfestingu á farmiðapöntun sinni og jafnframt sendi þjónustan henni ferðaáætlun og staðfestinguna með tölvupósti. Það var svo klukkan 02.20 að tilkynningin barst um gjaldþrot Sterling. Það vissi Karin ekkert um þegar hún kom til Kastrup-flugvallar í morgun til að ná flugi sínu til Alicante. "Ég veit ekki hvað skal segja. Þetta var ekki það sem ég þurfti á að halda. Móðir mín liggur á sjúkrahúsi og ég veit varla hvort hún er lífs eða liðin," segir Karin. "Ég skil ekki í því að þeir seldu mér miða svona seint. Þeir hljóta að hafa vitað eitthvað." Karin vonast til að komast til móður sinnar seinna í dag með öðru flugfélagi.
Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira