Viðskipti erlent

Íslenskar fjölskyldur á framfæri Hjálpræðishersins á Fjóni

Á milli 15 og 20 íslenskar fjölskyldur sem búsettar eru í Óðinsvéum á Fjóni hafa fengið aðstoð frá Hjálpræðishernum í borginni. Samkvæmt frásögn af málinu í blaðinu Fyens Stiftstidende hafa þessar fjölskyldur lent í fjárhagserfiðleikum vegna bankahrunsins á Íslandi.

Hjálpin sem fjölskyldurnar hafa fengið er einkum í formi gjafakorta í stórmarkaði borgarinnar. Eru gjafakortin á bilinu 400 til 700 danskar krónur en í einstaka tilfellum eru þau 1.000 dkr. eða rúmlega 20.000 kr..

Í fréttinni er fjallað um það að fólki sem leitar ásjár Hjálpræðishersins í Óðinsvéum hefur fjölgað mikið. Áður fyrr hafa um 300 fjölskyldur í borginni leitað ásjár hersins fyrir jólin en nú er fjöldi þeirra orðinn meir en 500.

John Wahl foringi í hernum segir í samtali við blaðið að þetta sé mesti fjöldi sem hann viti um í öll þau ár sem hann hefur starfað í hernum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×