Sjófrystingin verðminni 19. mars 2008 00:01 Ísað á bryggjunni Verðmæti afla sem fluttur er óunninn úr landi hefur aukist mikið milli ára. Verðmæti sjófrystra afurða dregst nokkuð saman. Markaðurinn/GVA
Aflaverðmæti sjófrystra afurða í fyrra nam tæpum 25 milljörðum króna í fyrra og dróst saman um tæplega fjögur prósent, miðað við árið á undan, að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar. Ríflega þrettán prósenta aukning varð á verðmæti afla sem seldur er beint til vinnslu hér. Hann nam 32 milljörðum í fyrra. Verðmæti afla sem seldur var á markaði til vinnslu innanlands jókst um fimm og hálft prósent og nam tæpum þrettán milljörðum. Verðmæti afla sem fluttur er óunninn úr landi jókst um næstum sjö prósent milli ára og nam átta og hálfum milljarði króna. Aflaverðmæti íslenskra skipa í heild nam 80 milljörðum króna á árinu 2007, samanborið við 76,2 milljarða á árinu 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 3,9 milljarða, sem nemur ríflega fimm prósentum milli ára. Verðmæti botnfisks nam ríflega 60 milljörðum króna í fyrra og jókst um tæp fimm prósent milli ára. Þorskaflinn var tæplega 30 milljarða króna virði og jókst um tæp 7 prósent. Aflaverðmæti ýsu jókst um næstum þriðjung milli ára og var 14,5 milljarðar króna í fyrra. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 15,5 prósent og nam fjórtán og hálfum milljarði króna. Þar munar mestu um loðnuna. Hins vegar dróst verðmæti karfa saman um ríflega ellefu prósent og nam tæpum sex milljörðum króna. Svipaða sögu er að segja af ufsanum. Verðmæti hans dróst saman um tæplega tíu prósent milli ára. Sama er um síldina að segja. Aflaverðmæti flatfisks dróst saman um næstum fimmtung. Aflaverðmæti rækju dróst einnig saman, um ríflega fimmtung. - ikh
Héðan og þaðan Mest lesið „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Viðskipti innlent Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Viðskipti erlent Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Viðskipti innlent Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Sjá meira