Segir að Lund hafi átt að fá milljarða fyrir að loka Nyhedsavisen 11. september 2008 12:37
Leynilegt skjal er komið fram í gögnum frá Nyhedsavisen sem segir að Morten Lund og aðrir eigendur Nyhedsavisen áttu að fá milljarða króna fyrir að hætta útgáfu blaðsins. Blaðið Jyllands Posten greinir frá þessu í dag. Þar segir að umrætt skjal sé upp á fjórar síður í formi óundirritaðs samnings um að útgáfa Nyhedsavisen skuli lögð niður. Sá sem á að hafa lagt fram tilboðið er David Montgomery eigandi Mecom Group sem m.a. gefur út Berlingske Tidende. Hann neitar því að umrætt skjal sé ekta. Samkvæmt samningi þessum var Morten Lund og öðrum boðin greiðsla upp á 15 milljónir punda, eða hátt í þrjá milljarða kr. ef útgáfu Nyhedsavisen yrði hætt. Samningurinn er dagsettur þann 28. ágúst s.l. eða þremur dögum áður en Morten Lund stöðvaði útgáfu Nyhedsavisen. Jyllands Posten hefur marga heimildarmenn að því að þeir Morten Lund og David Montgomery hafi hittst á klukkustundae löngum fundi þann 28. ágúst. Var fundurinn haldinn í fundarsal Nyhedsavisen við Gammel Strand í Kaupmannahöfn. Montgomery staðfestir það í samtali við Jyllands Posten að hann hafi átt nokkra fundi með Morten Lund en hann hvað fundinn þann 28. ágúst varðar vill hann hvorki staðfesta að sá fundur hafi átt sér stað né hvað var rætt á honum. Það var Svenn Dam fyrrum stjórnarformaður Nyhedsavisen sem fann umrætt skjal meðal pappíra sem hann fékk senda frá skriftofu sinni og hefur staðfest tilvist þess í samtali við Jyllands Posten.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira