Gjaldþrot Stones Invest smitar út um allt 11. september 2008 10:06
Gjaldþrot Stones Invest smitar út um allt í dönsku viðskiptalífi. Bankar þurfa að afskrifa lán sín til félagsins og jafnvel Parken, eigandi FCK-fótboltaliðsins, fékk skell í dönsku kauphöllinni í morgun. Fyrsti bankinn til að tilkynna um afskriftir vegna Stones Invest var EBH Bank sem greindi frá því að 100 milljónir dkr. eða sem svarar til 1,7 milljarða kr. yrðu afskrifaðar og væntingum til ársins breytt í samræmi við það. Þá hafa hlutir í Parken Sport og Entertainment fallið um 16% í kauphöllinni í morgun. Þar að baki liggur að einn stærsti eigandi Parken, Steen Larsen, er með 500 milljónir dkr. eða sem svarar um 8,5 milljörðum kr. í "klemmu" hjá Stones Invest eins og það er orðað. Steen hefur að öllum líkindum tapað þessari fjárhæð. Prófessor Per H. Hansen við Copenhagen Business School segir í samtali við Börsen að það kæmi honum ekki á óvart ef fleiri gjaldþrot fylgdu í kjölfar þess hjá Stones Invest. Prófessorinn nefnir þó að Steen Gude hafi tekið verulega áhættu í mörgum fjárfestingum sínum og því varla hægt að segja að bylgja gjaldþrota væri á leiðinni. "En ef fasteignaverðið heldur áfram að falla munu fleiri félög verða gjaldþrota. Það er ekkert vafamál," segir Hansen.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira