Hagnaður Actavis lækkar 8. maí 2007 17:21 Róbert Wessmann, forstjóri Actavis. MYND/Vísir
Actavis birti í dag fyrsta ársfjórðungsuppgjör ársins. Hagnaður dróst saman um 15,3% í 27 milljónir evra, og undirliggjandi hagnaður (að frátöldu afskriftum á yfirverði vegna fyrirtækjakaupa) dróst saman um 7,8% og var 32,4 milljónir evra. Fjórðungurinn var sá tekjuhæsti í sögu félagins og jukust tekjur um 11,9% í 382,7 milljónir evra en árið áður var hagnaðurinn 341,9 milljónir evra. Lækkun hagnaðar skýrist að mestu leiti af hærri afskriftum og auknum vaxtakostnaði samstæðunnar vegna ýmissa fjárfestingarverkefna. EBITDA hlutfall nam 20,7% í fjórðungnum, án tillits til dreifingar lyfja í Mið og Austur Evrópu var EBITDA framlegðin 23,1% Undirliggjandi vöxtur, án tillits til fyrirtækjakaupa eða gengisáhrifa, nam 8,3%, sem skýrist einkum af góðum árangri í Bretlandi, Þýskalandi og Rússlandi. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, sagði að árið hefði farið vel af stað hjá þeim. „Árið fer vel af stað hjá okkur og ánægjulegt að sjá góðan viðsnúning á mörkuðum okkar í Þýskalandi og Bretlandi." Róbert sagði árangur Actavis góðan í Rússlandi og Bandaríkjunum og vöxtur samstæðunnar og framlegð hefðu verið í samræmi við útgefin markmið. „Á síðari hluta ársins munum við sjá aukinn fjölda markaðssetninga nýrra lyfja og framlegð og vöxtur mun styrkjast eftir því sem líður á árið. Samhliða góðum undirliggjandi vexti munum við halda áfram að skoða áhugaverð tækifæri til vaxtar og framfylgja stefnu okkar um að koma Actavis í enn sterkari stöðu á heimsmarkaði" sagði Róbert að lokum.
Viðskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira