Fastir pennar

Gæði kennslu og gæði náms

Íslenskir skólakrakkar skora heldur lágt á alþjóðlega prófinu þessa dagana. Þeir eru fyrir neðan meðaltal OECD-ríkjanna. Það er náttúrlega ekki í lagi.

Hvað veldur?

Ég held að svarið búi í kennsluháttunum.

Þegar ég var pjakkur í Barnaskóla Íslands á brekkubrúninni á Akureyri upp úr miðri síðustu öld bjó ég við þau forréttindi að hafa sama kennarann frá því ég stillti mér upp í röðina í 1. bekk og allt þar til ég hélt til efra náms í Gagnfræðaskólanum litlu ofar á brekkunni.

Áslaug Axelsdóttir var minn harði og einarði kennari. Hún var foringinn. Henni var hlýtt. Hún kenndi okkur allt sem að kjafti kom. Einna best tókst henni upp í íslensku, sögu og landafræði. Það fór enda svo að það urðu mín bestu fög.

Ég held að það sé hægt að setja jafnaðarmerki á milli kennslugæða og námsárangurs. Eftir því sem kennarinn er færari í að miðla vitinu því klárari verða krakkarnir. Þetta eru ekki flókin vísindi.

Bernharð Haraldsson tók við mér í Gagganum, harður húsbóndi sem barði í okkur lærdóminn af sanngjörnu miskunnarleysi. Hann var áberandi bestur í landafræði. Einhverra hluta vegna hef ég æ síðar haft óbilandi áhuga á landafræði - og er nánast sjúkur í landakort, örnefni og, ef því er að skipta, jarðfræði og jarðsögu.

Gísli Jónsson og síðar Sverrir Páll Erlendsson og Valdimar Gunnarsson tóku við mér í Menntaskólanum á Akureyri; slíkir yfirburða kennarar í íslensku og bókmenntum að ég hef aldrei verið samur maður á eftir. Þeir efldu vitið, glæddu áhugann og hrifu mig með sér.

Gunnar Frímannsson var félagsfræðikennarinn minn í MA; einnig slíkur afburðakennari að ég hef alla tíð haft ódrepandi áhuga á samfélaginu, pólitík, skoðanaskiptum og fjölmiðlun.

Þetta er lykilfólk í lífi mínu.

Ég held það sé ekki tilviljun að ég lagði fyrir mig blaðamennsku og ritstörf.

Þetta er minn námsgrunnur.

Ég er bestur í því sem kennararnir voru bestir í.

Þetta segir mér eitt: Við eigum að auka gæði kennslunnar, efla kennaranámið, hefja það lóðrétt upp úr meðalmennskunni; tryggja skólunum framúrskarandi, áhugasama og vel menntaða kennara - á góðum launum.

Námsárangurinn eykst sem þessu nemur.

Góðir kennarar eru jafn áhrifaríkir og góðir foreldrar. Það má vart á milli sjá hvorir gera börnum meira gagn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, er á réttri leið. Hún býr örugglega að sömu reynslu og ég. Góð kennsla gyllir hugann. Hún er bjargið sem grunnur samfélagsins verður að standa á.

Hér botnar Einar Ben mitt erindi: Vilji er allt sem þarf.

-SER.

   






×