Formúla 1

Hamilton flýr til Sviss

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton.

Ökuþórinn Lewis Hamilton hefur ákveðið að flytja til Sviss en þetta tilkynnti hann í dag. Ástæðan er sú að hann hefur fengið sig fullsaddan af ágangi fjölmiðla í Bretlandi sem sífellt eru að ráðast inn í hans einkalíf.

„Í Sviss fær maður meiri frið. Síðasta ár hefur verið mér erfitt. Ég hef lítið getað verið með fjölskyldu minni og vinum. Ég get ekki farið á salernið á bensínstöð án þess að vera eltur af fólki sem vill eiginhandaráritun," sagði Hamilton.

Hamilton hafnaði í öðru sæti í stigakeppni ökuþóra á sínu fyrsta tímabili í Formúlu-1.

Hamilton er ekki fyrsti Formúlu-1 ökuþórinn sem flytur til Sviss en þar búa m.a. Räikkönen og Fernando Alonso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×