Afkoma Bakkavarar undir spám 25. október 2007 16:12 Ágúst og Lýður Guðmundssynir, stofnendur Bakkavarar.
Hagnaður Bakkavarar nam 11,3 milljónum punda, jafnvirði 1,4 milljarða króna, samanborið við 15,2 milljónir punda á sama tíma í fyrra. Þetta er nokkru undir spám greiningardeilda viðskiptabankanna sem reiknaðist til að hagnaðurinn myndi nema á bilinu 12 til 14 milljónir punda. Rekstrarhagnaður félagsins nam 39,7 milljónum punda, jafnvirði fimm milljörðum króna, sem er tveimur prósentum minna en á sama tíma í fyrra. Velta nam hins vegar 375,7 milljónum punda, jafnvirði 47,2 milljörðum króna, sem er 13 prósenta aukning frá þriðja ársfjórðungi í fyrra. Þá nam hagnaður hluthafa 11,3 milljónum punda á tímabilinu, sem er fjórðungi lægra en í fyrra. Eiginfjárhlutfall nam 19,4 prósentum samanborið við 18,2 prósent við árslok og nam arðsemi eigin fjár 19,2 prósentum á tímabilinu. Á sama tímabili í fyrra nam arðsemin hins vegar 28,2 prósentum. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir í tilkynningu frá félaginu, að félagið standi frammi fyrir mjög krefjandi aðstæðum þar sem verð á hráefni hafi haft veruleg áhrif á matvælaframleiðslu. „Þetta kemur skýrt fram í afkomu og sölu félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins. Langtímahorfur Bakkavör Group eru góðar - eftirspurn eftir ferskum tilbúnum matvælum er sífellt að aukast út um allan heim og er félagið vel í stakk búið til að nýta þau tækifæri sem felast í þeirri þróun," segir hann. Uppgjör Bakkavarar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira