Formúla 1

Raikkönen öflugur í Kína

NordicPhotos/GettyImages

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen náði besta tíma á báðum æfingum dagsins fyrir Kínakappaksturinn sem fram fer í Shanghai á sunnudaginn. Þar getur Lewis Hamilton orðið fyrsti maðurinn til að vinna titil á sínu fyrsta ári í Formúlu og jafnframt orðið sá yngsti til að hampa titlinum.

Fernando Alonso náði næstbesta tímanum í Shanghai í dag, Felipe Massa varð þriðji og Lewis Hamilton náði fjórða besta tímanum. Hamilton hefur 12 stiga forskot á helsta keppinaut sinn Alonso þegar tvær keppnir eru eftir af mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×