Formúla 1

Ferrari blæs á orðróm um Alonso

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fernando Alonso í McLaren-bifreið sinni.
Fernando Alonso í McLaren-bifreið sinni. Nordic Photos / Getty Images

Jean Todt, liðsstjóri Ferrari í Formúlu 1, segir ekkert hæft í þeim orðrómum að Fernando Alonso sé á leið til liðsins.

Alonso er samningsbundinn McLaren en staða hans hjá liðinu er afar viðkvæm og hefur verið fullyrt að hann fari frá liðinu eftir núverandi tímabil.

Todt sagði að Ferrari væri ánægt með núverandi ökuþóra liðsins, þá Kimi Raikkönen og Felipe Massa sem eru samningsbundnir Ferrari til loka tímabilsins 2008.

„Ég myndi virða samning við skúringamann, hvað þá ökumennina. Ef það er samningur fyrir hendi, virðum við hann. “ 

Líklegast þykir að Alanso fari aftur til Renault en hann varð heimsmeistari með liðinu árin 2004 og 2005. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×