Formúla 1

Ron Dennis og Alonso talast ekki við

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Á meðan allt lék í lyndi milli þeirra Fernando Alonso og Ron Dennis.
Á meðan allt lék í lyndi milli þeirra Fernando Alonso og Ron Dennis. Nordic Photos / Getty Images

Ron Dennis, liðsstjóri McLaren, greindi frá því við vitnaleiðslur á njósnamálinu í síðustu viku að samband hans við Fernando Alonso væri afar stirt.

Svo virðist sem að Alonso sé síst vinsælasti maðurinn í Formúlunni en hann hefur verið harkalega gagnrýndur fyrir aksturslag sitt í fyrsta hringnum í belgíska kappakstrinum í Belgíu um helgina.

Dennis sagði að hann hafi ekki rætt við Alonso síðan að ungverska kappakstrinum lauk fyrir fáeinum vikum.

Alonso mun þá hafa hótað því að uppljóstra um sönnunargögn sem síðan urðu til þess að McLaren var sektað um 100 milljónir dollara og svipt öllum stigum sínum í stigakeppni bílasmiða.

"Við höfum ekki rætt saman. Samband mitt við Alonso er sérstaklega stirt, vægt til orða tekið."

Dennis sagði eftir belgíska kappaksturinn um helgina að starf hans snerist ekki um að vinna sér aðdáun aðra.

"Ef ég á í erfiðum samskiptum við aðra þá er það bara þannig." 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×