Formúla 1

Höfum ekki efni á að gera fleiri mistök

Kimi Raikkönen
Kimi Raikkönen NordicPhotos/GettyImages

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá Ferrari á von á gríðarlega harðri keppni um helgina þegar Ítalíukappaksturinn í Formúlu 1 fer fram á Monza brautinni sögufrægu. Raikkönen segir Ferrari ekki hafa efni á að gera fleiri mistök á næstunni ef liðið ætli sér að skáka McLaren.

"Þegar litið er á tímana sem menn hafa verið að ná á æfingum undanfarna daga er ljóst að baráttan verður gríðarlega hörð um helgina. Næstu keppnir verða því þýðingarmiklar og við megum ekki gera nein mistök," sagði sá finnski.

Englendingurinn Richard Hamilton hefur enn forystu í keppni ökuþóra og félagi hans og heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá McLaren er aðeins fimm stigum á eftir honum í töflunni. Felipe Massa hjá Ferrari er 10 stigum á eftir Hamilton og Raikkönen er svo stigi á eftir félaga sínum. McLaren liðið hefur auk þessa 10 stiga forskot í keppni bílasmiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×