Fimm ára samfelldu vaxtarskeiði lokið 13. júní 2007 09:12
Landsframleiðsla var nánast óbreytt á fyrsta fjórðungi þess árs miðað við sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að einkaneysla hafi dregist saman um 1,2 prósent á milli ára og sé þar með lokið samfelldu vaxtarskeiði einkaneyslunnar sem staðið hefur frá því á fjórða ársfjórðungi árið 2002. þjóðarútgjöld hafi dregist saman um tæp 10 prósent á milli ára þar sem einkaneysla er talin hafa dregist saman um 1 prósent og fjárfesting um 28 prósent. Samneysla jókst á sama tíma um 2 prósent. Í Hagtíðindum segir að þrátt fyrir að einkaneysla hafi dregist saman þá sé raunin sú að flestir liðir hennar vaxi aðrir en bílakaup. Útgjöld Íslendinga erlendis hafi dregist sömuleiðis saman en útgjöld erlendra manna hér á landi hafi aukist á móti. Í Hagtíðindum kemur fram að útflutningur hafi aukist á tímabilinu um 17 prósent en innflutningur dregist saman um 12 prósent. Hafi því árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dregist saman um 0,9 prósent frá fjórða ársfjórðungi í fyrra til fyrsta ársfjórðungs á þessu ári. Fjárfesting er talin hafa dregist saman um rúm 28 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Samdráttur í fjárfestingu atvinnuveganna nam 41 prósenti og í fjárfestingu hins opinbera um 7 prósent. Á sama tíma var hins vegar áframhaldandi vöxtur í íbúðarfjárfestingu, eða um 6,6 prósent á milli ára. Hagtíðindi Hagstofu Íslands
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Scobie hjónin: „Við eigum frekar að njóta meira og vera þakklát fyrir allt sem við höfum“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Sjá meira