Formúla 1

Dennis: Alonso og Hamilton eru bestu félagar

Á myndinni sést Fernando Alonso keyra æfingahring í Monaco.
Á myndinni sést Fernando Alonso keyra æfingahring í Monaco. MYND/AFP
Ron Dennis, liðsstjóri McLaren-Mercedes, segir sögusagnir um að ósætti sé á milli Fernando Alsono, núverandi heimsmeistara, og nýliðans Lewis Hamilton, sem nú leiðir keppni ökuþóra, algjöra vitleysu.

Margt hefur heyrst um að Alonso sé ósáttur við Hamilton vegna velgengi hans. Dennis blæs á þær sögur. „Ef þið gætuð séð líkamstjáningu þeirra, hvernig þeir eru þegar þeir leika sér í tölvuleikjum saman, þá sést að þeir eru kappssamir og vilja vinna, en ekki að það komi niður á sambandi þeirra eða sambandi liðsheildarinnar."

Dennis notaði einnig tækifærið á fréttamannafundi í gær til þess að gagnrýna ummæli Eddie Jordan og Keke Rosberg sem sögðu Hamilton ekki enn hafa sýnt að hann búi yfir nauðsynlegri hörku til þess að gera hvað sem þarf til þess að sigra. „Ég held að þeir ættu bara að þegja og einbeita sér að sínum eigin málum sem ég er nokkuð viss um að sé það besta í stöðunni fyrir þá."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×