Leikjavísir

Tvær milljónir seldar

PlayStation 3 verður gefin út hér á landi í Mars
PlayStation 3 verður gefin út hér á landi í Mars

Sony fyrirtækið tilkynnt að PlayStation 3 vélin hafi selst í meira en 2 milljónum eintaka eða 1 milljón véla í Bandaríkjunum og 1 milljón í Japan. Er þetta er í takt við þau takmörk sem Sony fyrirtækið setti sér fyrir árslok 2006.

PlayStation 3 er sú PlayStation tölva sem hraðast hefur náð 2 milljóna markinu, en Sony fyrirtækið stefnir aðvera búnir að selja 6 milljónir véla fyrir lok mars 2007.

Leikjasala á PlayStation 3 fór einnig vel af stað og hafa þegar selst meira en 5 milljón eintök af leikjum og hefur þar verið vinsælastur Resistance : Fall of Man og svo fylgja á eftir Madden NFL 07, Need for Speed Carbon, Fight Night Round 3 og Tiger Woods PGA Tour 07.

Meira en 500,000 manns hafa skráð sig í netþjónustu PlayStation 3 og hefur prufunni af Gran Turismo HD verið hlaðið niður 300,000 sinnum.

PlayStation 3 verður gefin út hér á landi í mars næstkomandi..






Fleiri fréttir

Sjá meira


×