Formúla 1

Kovalainen hræðist ekki Alonso

Heikki Kovalainen er brattur fyrir sitt fyrsta keppnistímabil í Formúlu 1
Heikki Kovalainen er brattur fyrir sitt fyrsta keppnistímabil í Formúlu 1 NordicPhotos/GettyImages

Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen sem leysir Fernando Alonso af hólmi hjá liði Renault í Formúlu 1, segist tilbúinn í að veita heimsmeistaranum góða keppni á næsta tímabili. Alonso keppir fyrir McLaren á næsta tímabili eftir að hafa unnið titil ökuþóra tvö ár í röð hjá Renault.

"Ég er þegar búinn að spjalla við Alonso um næsta ár og ég sagði honum að ég myndi gefa allt mitt til að veita honum samkeppni. Hann sagði mér að hafa engar áhyggjur - hann ætti sjálfur eftir að verða góður. Þetta er bara heilbrigð og góð samkeppni okkar á milli, en hver einasti ökumaður í sportinu trúir því að hann sé sá besti," sagði Kovalainen og bætti við að hann væri dálítið súr yfir því að fá ekki að keppa við Michael Schumacher, því hann væri besti ökumaður allra tíma að sínu mati. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×