Athugun ekki leitt ætlan um saknæmt athæfi í ljós 21. febrúar 2007 18:30
Athugun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki leitt í ljós, með óyggjandi hætti, að fólk í hópi vefstjóra sem dreifir klámi á Netinu, hafi gerst brotlegt við lög. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna segir fráleitt að banna þessu fólki að koma til landsins. Ekkert mál er að verða sér út um klám á Íslandi án milligöngu Netsins. Við vörum við myndum með þessari frétt sem gætu sært blygðunarkennd fólks. Fordæmi eru fyrir því að yfirvöld hafi hindrað fólk í að koma til Íslands og eða haft töluverð afskipti af ferðum þess og hegðun eftir að það er komið til landsins. Þannig var hópi fólks sem styður Falun Gong meinað að koma til landsins í tengslum við opibera heimsókn Kínaforseta árið 2002. Aðir komust til landsins og voru jnepptir í varðhald og afskipti höfð af öðrum sem reyndu að komast nálægt Kínaforseta til að mótmæla. Þá hafa lögregluyfirvöld ítrekað meinað fylgismönnum Hells Angels að koma til landsins, enda margir þeirra á sakaskrá fyrir alvarlega glæpi. Nú ber aftur á móti svo við að margir þeirra sem mótmæltu móttökunum sem Falun Gong liðar fengu, krefjast þess nú að hópur fólks sem rekur heimasíður með klámefni fái ekki að koma til landsins. En það er ekki eins og klám sé ekki til á Íslandi. Það er hægt að kaupa það í nánast öllum styrkleikaflokkum á blaðsölustöðum og verslunum öðrum víða um landið. Deilan snýst kannski um það hvenær erótík verður klám og hvenær klám verður síðan að hörðu klámi. Það hefur verið fullyrt að þetta fólk kunni að standa fyrir framleiðslu og dreifingu á barnaklámi og eigi jafnvel hlutdeild að mansali og þrælahaldi, án þess að nokkrar sannir hafi verið færðar fram í þeim efnum. Sjálft segist þetta fólk stunda löglega og skráða starfsemi í heimalöndum sínum, með fullorðnu fólki sem komi fram af fúsum og frjálsum vilja. "Mér finnst fráleitt að banna þessu fólki að koma til landsins. Og ég held að það yrðu mikil mistök hjá stjórnvöldum að taka undir slíkar kröfur," segir Borgar Þór Einarsson formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS). Hins vegar sé stjórnmálamönnum eins og öðrum heimilt að láta í ljós sínar persónulegu skoðanir. En það væri mjög hættulegt þjóðfélag sem byggðist á því að stjórnvöld létu sitt gildismat, sitt siðferðismat, ráða því hvernig þau fara með opinbert vald. Nokkuð úrval erlendra tímarita fæst á blaðsölustöðum og bensínstöðvum um allt land ásamt alíslensku Bleiku og bláu, þar sem konur og karlar sjást eðla sig án þess að nokkuð sé þar falið. Stefán Eiríksson lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir að embættið sé að skoða mál hinna væntanlegu gesta með hliðsjón af hegninarlögum sem bannar framleiðslu og dreifingu á klámi og með hliðsjón af fyrrgreindum ásökunum. Athugun embættisins hafi ekki leitt neitt saknæmt í ljós með óyggjandi hætti varðandi væntanlega heimsókn þessa fólks. Það þarf ekki erlenda vefstjóra til að kynna klámið fyrir Íslendingum. Það er úr nógu að velja. Þeir sem berjast á móti klámvæðingunni og kláminu, hafa eðlilega miklar áhyggjur af því fólki sem leikur í þessum myndum. Hvort konurnar fái borgað fyrir það sem þær eru að gera eða hvort þær eru neyddar til þess. Þá er auðvitað um þrælahald eða mansal að ræða eins og fram hefur komið. Og einhverra hluta vegna hafa menn meiri áhyggjur af konunum í þeim efnum en körlunum en það er líka hægt að velja klámmyndir þar sem eru engar konur, bara bara karlar en einhverra hluta vegna hefur fólk minni áhyggjur af því. "Það eru líkamsmeiðingar og ofbeldisbrot framin í Reykjavík og öllu Íslandi á hverjum degi. Eru það ekki brýnu verkefnin," spyr Borgar Þór Einarsson formaður SUS. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við fólk úr hinum umdeilda hópi sem hyggst koma hingað til lands að skemmta sér. Enn sem komið er heldur hópurinn fast við sitt og ætlar að koma hingað í byrjun mars, þótt einhverjir hafi hætt við að koma vegna þeirrar umræðu sem spunnist hefur hér á landi og yfirlýsinga stjórnmála- og embættismanna.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira