Einkarannsókn á Hafskipsmálinu 18. október 2007 07:00
Hópur sérfræðinga vinnur nú að viðamikilli rannsókn á allri umgjörð Hafskipsmálsins svokallaða, eins umdeildasta saka og gjaldþrotamáls síðustu áratuga. Hafskipsmennirnir Björgólfur Guðmundsson, Páll Bragi Kristjónsson og Ragnar Kjartansson, eru að baki þessari ítarlegu úttekt sem staðið hefur mánuðum saman og er hvergi lokið. Við verkið starfar nærri einn tugur lögfræðinga og sagnfræðinga. Ekki mun nauðsynlega vera stefnt að því að krefjast endurupptöku dómsmálsins sjálfs heldur er öll umgjörð málsins undir í rannsókninni sem sögð er hafa að markmiði að allur sannleikurinn líti dagsins ljós og að hinir dæmdu menn fái uppreist æru. Erfiðleikar voru í rekstri Hafskips á árinu 1985 og var félagið tekið til gjaldþrotaskipta. Gefnar voru út ákærur á hendur sautján mönnum. Á endanum voru fjórir þeirra dæmdir til refsingar í Hæstarétti í júní 1991. Þyngsta dóminn hlaut Björgólfur Guðmundsson sem verið hafði forstjóri Hafskips. Hann fékk tólf mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs, vill hvorki játa því né neita að hafin sé rannsókn fyrir Hafskipsmennina á málinu. Ekki náðist í Pál Braga Kristjónsson sem er í orlofi erlendis. Rannsóknarhópurinn mun bæði vera að skoða opinber gögn sem og ýmis gögn úr fórum manna sem tengdust Hafskipsmálinu og upplýsingar frá þeim. Mikið mun þegar hafa komið fram sem Hafskipsmenn telja að varpi nýju og óvæntu ljósi á atburðarásina, til dæmis áður óbirt minnisblöð í stjórnsýslunni. Rannsakaður er þáttur ýmissa stjórnmálamanna, opinberra embættismanna og forsvarsmanna í atvinnulífinu. Fyrir nokkrum árum eignaðist félag Björgólfs Guðmundssonar ráðandi hlut í Eimskip. Búast má við að skjöl úr fórum þess félags séu meðal þeirra gagna sem nýtt verða til að draga upp heildarmynd af Hafskipsmálinu
Mest lesið Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Erlent Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Innlent Festust á hvolfi í hálftíma Erlent Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Innlent Fleiri fréttir Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Kynntu á annað hundrað aðgerðir í loftslagsmálum Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Íþróttafélög hafa sum selt áfengi í leyfisleysi Alvarlegt rútuslys og kona sem á níutíu þúsund servíettur Sjá meira