Landsfundur óákveðinna 5. mars 2007 00:01 Almenn samstaða hefur náðst um að landsfundur óákveðinna kjósenda verði annaðhvort haldinn eða ekki haldinn áður en framboðsfrestur fyrir næstu alþingiskosningar rennur út, samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið lét gera og mun birtast í Morgunblaðinu eftir nokkra daga. Í UMHVERFISMÁLUM er líklegt að þeir sem eru hlynntir tekjum af stóriðju en mótfallnir mengun muni leggja til að stefnt verði að því að byggja raforkuver sem lengst frá mannabyggðum en staðsetja verksmiðjur hins vegar í byggðakjörnum til að stytta leið starfsmanna í vinnu og lágmarka þannig mengun frá bifreiðum þeirra. Í sjávarútvegsmálum liggur fyrir málamiðlunartillaga um að Atlantshafinu verði breytt í hlutafélag í opinberri eigu, Atlantshafið ohf. og eignarhaldið verði hjá þjóðinni en afnotarétturinn hjá þeim sem skilja reglugerðir sjávarútvegsráðuneytisins. Í BYGGÐAMÁLUM er meirihluti fyrir tillögu um að skilgreina öll svæði utan Gullbringu- og Kjósarsýslu sem frístundabyggð með tilheyrandi þjónustustigi. Lögð verður áhersla á jafnrétti kynjanna með því að binda í lög að konur skuli framvegis hafa sömu laun fyrir sömu vinnu og karlmenn hafa áður unnið og skuli konur jafnan sitja fyrir þeim störfum sem losna er karlmenn fá stöðuhækkun og færast upp um launaflokk. Í EFNAHAGSMÁLUM liggur fyrir tillaga um að tekið verði upp svonefnt verðbólguálag sem lagt verði ofan á vísitölubætur af lánum og renni óskert til íslenskra banka og lánastofnana til að gera þeim kleift að standast erlenda samkeppni án þess að hækka þjónustugjöld sín. BÚIST er við að nokkur átök verði á fundum milli þeirra sem eru óákveðnir í stuðningi sínum við stjórnina og þeirra sem eru óákveðnir í stuðningi við stjórnarandstöðuflokka. Hugsanleg er sú málamiðlun að samþykkt verði að knýja á um tímabærar og nauðsynlegar breytingar sem hægt verði að framkvæma án þess að breyting verði á daglegu lífi einstakra kjósenda. Mikil þátttaka var í þessari könnun og svarhlutfall óákveðinna rétt um 51%. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun