Kannað verði hvort Seyðisfjörður sé álitlegur fyrir netþjónabú 28. nóvember 2007 16:45 MYND/Valgarður
Seyðisfjörður hefur bæst í þann hóp sveitarfélaga sem Fjárfestingarstofa vill vinna með til þess að kanna möguleika á uppsetningu netþjónabúa. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Það var Birkir Jón Jónssson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem gerði netþjónabú að umtalsefni. Fram hefur komið að Fjárfestingarstofa hafi sent tíu sveitarfélögum erindi þar sem óskað er eftir samstarfi um að kanna aðstæður í þeim fyrir rekstur og uppsetningu netþjónabúa. Birkir spurði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hvort flutningsgeta raforku væri nægjanleg í þessum sveitarfélögum og á hvaða svæðum ónóg flutningsgeta hamlaði uppbyggingu netþjóna. Spurði hann ráðherra enn fremur um það við hvaða sveitarfélög ráðuneytið ætti samstarf um hugsanlega uppbyggingu netþjónabúa. Össur Skarphéðinsson upplýsti að Fjárfestingarstofa væri nú að kanna hvort flutningsgeta raforkunnar væri nóg á umræddum stöðum en niðurstöður þeirrar könnunar lægju ekki fyrir. Benti Össur enn fremur á að netþjónabú væru misorkufrek og notuðu allt frá nokkrum megavöttum upp í hundrað megavött. Þá væri gerð krafa um mikið afhendingaröryggi á orku þannig að það þyrfti að hans mati í raun tvöfalt orkuflutningskerfi fyrir netþjónabúin. Össur upplýsti enn fremur að sum þeirra tíu sveitarfélaga sem Fjárfestingarstofa hefði leitað eftir samstarfi við hefðu hafnað því. Hins vegar hefði verið bent á annað sveitarfélag en þessi tíu sem kæmi vel til greina varðandi uppbyggingu netþjónabúa. Það væri Seyðisfjörður. Þar væri verið að byggja upp virkjun sem gæti komið inn ef landsnetið gæfi sig. Enn fremur kæmi Farice-strengurinn, sem tengdi Ísland við útlönd, þar á land.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Sjá meira