Hagnaður Murdochs eykst milli ára 9. ágúst 2007 09:45 Fjölmiðla- og afþreyingamógúllinn Rupert Murdoch.
News Corporation, afþreyinga- og fjölmiðlaveldi ástralskættaða milljarðamæringsins Ruperts Murdoch, skilaði hagnaði upp á 890 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 56,5 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi, sem var fjórði fjórðungurinn í bókum samstæðunnar. Þetta er 4,5 prósenta aukning á milli ára. Fjölmargir miðlar eru undir hatti News Corporation, svo sem bandaríska Fox News fréttastöðin, hin breska Sky News og fjöldi dagblaða. Þá tilheyrir kvikmyndaframleiðandinn 20th Century Fox samstæðu Murdochs. News Corporation tryggði sér í byrjun mánaðarins bandaríska útgáfufélagið Dow Jones & Co., sem meðal annars heldur úti samnefndri fréttaveitu og gefur út dagblaðið Wall Street Journal. Kaupverðið nemur 5,6 milljörðum bandaríkjadala. Murdoch er sagður ætla að grípa til hagræðingarráða innan Dow Jones og spara með því móti um 50 milljónir dala. Niðurskurður innan fyrirtækisins virðist því yfirvofandi, að mati breska ríkisútvarpsins, BBC. Helstu skýringarnar á auknum hagnaði samstæðunnar er aukin sala auglýsinga og fleiri áskrifendur að sjónvarpsstöðvum fyrirtækisins, að sögn BBC. Hagnaðurinn var hins vegar lítill hjá kvikmyndafyrirtækinu.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp í hópuppsögnum Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira