Styttist í risayfirtöku 6. október 2007 11:30 Eitt útibúa ABN Amro í Hollandi. Mynd/AFP
Royal Bank of Scotland, belgíski bankinn Fortis og hinn spænski Santander hafa tryggt sér samþykki 85 prósent hluthafa fyrir yfirtökutilboði í hollenska bankann ABN Amro. Bankarnir, sem leggja yfirtökutilboðið fram í sameiningu hafa undanfarið hálft ár att kappi við breska bankann Barclays um yfirtöku á hollenska bankanum. Barclays dró sig hins vegar út úr baráttunni í gær eftir að stjórnendur bankans greindu frá því að þeir hefðu ekki náð að tryggja sér samþykki meirihluta hluthafa í bankanum, eða einungis 0,2 prósenta. Breska blaðið Financial Times hefur eftir ónafngreindum heimildum í dag, að miklar líkur séu á að bankahópurinn geri hluthöfum formlegt tilboð í næstu viku en þá verður niðurstaða af hluthafafundi hollenska bankans kynnt. Tilboðið hljóðar upp á 70 milljarða evra, jafnvirði sex þúsund milljarða króna. Gangi það eftir verður þetta stærsta yfirtakan í evrópskum fjármálageira.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira