Viðskipti innlent

Keyrslan borgaði sig

Ásgeir Baldurs, forstjóri VÍS
Ásgeir Baldurs, forstjóri VÍS

Ásgeir Baldurs, forstjóri VÍS, útskrifaðist úr MBA-námi við Háskóla Íslands árið 2004. Þegar Ásgeir hóf námið var hann forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá VÍS. Í dag gegnir hann stöðu forstjóra vátryggingafélagsins. Það hefur hann gert frá því í upphafi ársins 2006.

Fyrir hafði Ásgeir BS-gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði. Í því námi hafði hann lagt áherslu á fjármálatengd valfög. Þeim áherslum hélt hann áfram í MBA-náminu. Ásgeir segist hafa getað nýtt námið beint í starfi sínu. Það sem hann lærði hafi bæði átt vel við fyrra starf hans auk þess sem það hafi átt sinn þátt í þeim breytingum sem urðu á högum hans. Það sé meðal annars náminu að þakka að hann er í dag forstjóri VÍS.

„Námið við Háskóla Íslands stóð vel undir þeim væntingum sem ég hafði gert til þess og hefur gert mikið gagn. Ástæðan fyrir því að ég valdi Háskóla Íslands var að ég taldi námið þar vera fræðilegt sem hentaði mér mjög vel. Ég var fyrir með góð sambönd í atvinnulífinu. Í starfi gefst manni hins vegar ekki tækifæri til að lesa kennslubækur á hverjum degi eins og maður gerir í námi. Þannig upplifir maður allar nýjustu stefnur og strauma og er með puttann á púlsinum.“

Ásgeir ber gæðum MBA-námsins vel söguna. „Gæði kennslunnar voru mikil. Námið var mjög vel upp sett og gerðar voru miklar kröfur til nemenda. Það var metnaður í þessu. Þá var ekki síst mikils virði að vera í samstarfi við fólk úr öðrum geirum og á öllum aldri. Hópastarfið og þetta tengslanet sem myndaðist var mjög gott og skapandi.

Ásgeir var í fullu starfi samhliða náminu. „Það þurfti gott samkomulag innan fjölskyldunnar og skilning vinnuveitanda. Þar sem það var fyrir hendi hjá mér gekk þetta vel upp. En þetta var vissulega mikil keyrsla meðan á þessu stóð.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×