Viðskipti innlent

Starfsframinn tók nýja stefnu

Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.

Þátttaka Hrannar Marinósdóttur í MBA-námi Háskólans í Reykjavík varð til þess að starfsferill hennar tók nýja stefnu. Áður en hún hóf nám hafði hún starfað lengi sem blaðamaður og þyrsti í breytingar. „Ég var orðin dálítið þreytt á blaðamennskunni og langaði til að gera eitthvað nýtt. Ég hafði heyrt góðar sögur af MBA-náminu í Háskólanum í Reykjavík og ákvað að láta slag standa."

Hrönn hóf nám árið 2002 og byrjaði fljótlega að leggja drögin að framtíðardraumnum. Hún hafði lengi haft áhuga á góðri kvikmyndagerð og hafði meðal annars tvisvar staðið fyrir minni kvikmyndahátíðum hér á landi. Henni þótti skorta á fjölbreytni í kvikmyndamenningu hér á landi. Hún vann því stórt stefnumótunarverkefni þar sem hún leitaði svara við þeirri rannsóknarspurningu hvort hægt væri að halda alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. Út úr því fékk hún jákvætt svar. Því leið ekki langur tími eftir að hún útskrifaðist úr náminu þar til vinna var hafin að fyrstu hátíðinni.

Kvikmyndaglaðir Íslendingar hafa tekið hátíðinni vel og verður hún haldin í fjórða sinn í september næstkomandi. Hrönn hefur metnaðarfullar hugmyndir um þróun hennar sem stefnt er að að verði meðal lykilkvikmyndahátíða í Evrópu í framtíðinni. Að auki rekur Hrönn kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn sem sýnir tvisvar í viku í Tjarnarbíói með glænýjum og fullkomnum bíógræjum.

Bakgrunnur Hrannar var á sviði stjórnmála- og fjölmiðlafræði. Hún segist hafa fengið góða innsýn í allar helstu greinar viðskipta í náminu. „Þetta var mjög gagnlegt enda var margt af því sem ég var að læra alveg nýtt fyrir mér. Þá má ekki gleyma uppbyggingu tengslanetsins. Í hópnum var fólk úr öllum starfsgreinum sem hefur mismunandi sýn á hlutina. Þá fannst mér nálgun kennslunnar mjög praktísk á allan hátt. Hún byggist mikið á raunhæfum verkefnum og dæmisögum."

Hrönn segir námið í Háskólanum í Reykjavík hafa gefið henni það sjálfstraust að láta til skarar skríða við kvikmyndahátíðina. „Þarna hefur maður öll verkfærin og fær þá aðstoð sem maður þarf. Maður er hvattur til þess að láta drauma sína rætast."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×