Rautt kjöt orsök brjóstakrabbameins 19. apríl 2007 12:00 Breskir sérfræðingar mæla með því að fólk miði daglega neyslu á rauðu kjöti við 85 grömm.
Tengsl eru talin vera á milli neyslu unnins rauðs kjöts og brjóstakrabbameins. Konur sem borða mikið kjöt, einkum og sér í lagi rautt eða unnið kjöt, eru líklegri til að fá brjóstakrabbamein, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar breskrar könnunar. Sérfræðingar við Háskólann í Leeds fylgdust með matarvenjum 35.372 kvenna á aldrinum 35 til 69 ára í átta ár. Rannsóknin leiddi í ljós að konur sem borðuðu kjöt í mestu magni voru mun líklegri en grænmetisætur til að fá brjóstakrabbamein fyrir eða eftir tíðarhvörf. Mesta áhættan á brjóstakrabbameini var í hópi kvenna eftir tíðahvörf og virtist rautt og unnið kjöt ein helsta orsökin að mati rannsakenda. Konur sem borðuðu rautt kjöt voru 56 prósentum líklegri til að fá brjóstakrabbamein en þær sem slepptu því. Þær sem neyttu rauðs kjöts í mestu magni voru 64 prósentum líklegri til að fá brjóstakrabba en hinar. Tengslin á milli kjötneyslu og brjóstakrabbameins reyndust ekki eins sterk í hópi kvenna fyrir tíðahvörf. Engu að síður voru konurnar tuttugu prósentum líklegri en grænmetisætur til að fá brjóstakrabba. Óljóst er hvaða ástæður kunna að vera fyrir þessum tengslum. Getgátur eru uppi um að mettuð fita eigi hlut að máli. Frá þessu er greint í The British Journal of Cancer.
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið