Vændi í Þýskalandi, Gumball kappaksturinn 3. maí 2006 13:51 Það er allt í lagi að hafa nokkur atriði á hreinu í tengslum við vændi og heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Þjóðverjar hafa að sumu leyti annað viðhorf til líkamlegra hluta en aðrar þjóðir. Þeir hafa til dæmis alltaf verið mjög spenntir fyrir núdisma og því sem kallast körperkultur. Allir sem hafa komið í Landmannalaugar um háferðamannatímann hafa séð nakta Þjóðverja flatmaga í laugunum, konur sem eru loðnar undir höndunum, karla sem valsa um með tólin úti í loftið. Er annars búið að banna nekt á hálendinu? Þýskaland er eina landið í heiminum þar sem ég hef séð nakinn mann í strætó. Hann var í sandölum, að öðru leyti allsber, stóð og las blað með bumbuna út í loftið. Enginn veitti þessu neina eftirtekt. Líklega var hann á leið í enska garðinn í München þar sem allir eru allsberir á sumrin. Að sumu leyti er þetta pínu ógeðslegt. Kemur dálítið niður á dulúðinni - leyndardómnum - sem sumir vilja hafa í kringum kynlíf. Frænka mín sem var lengi búsett í Þýskalandi sagði mér að ólíklegustu menn færu til vændiskvenna þar í landi. Fyrir þeim væri þetta svona eins og að fara í sund. Vændi er enda löglegt í Þýskalandi og vændiskonur njóta þar verndar yfirvalda. Þær þurfa að gangast undir læknisskoðun. Það þarf ekki endilega að vera svo vont fyrirkomulag, sérstaklega ef hægt er að koma í veg fyrir mansal og kynlífsþrælkun - óghugnanlegustu fylgifiska vændisins. En hverju á Eggert Magnússon, formaður KSÍ, að geta breytt í þessu sambandi? Það er mér alveg hulið. --- --- --- Þegar ég var lítill var sýnd í Nýja bíói mjög vinsæl kvikmynd með Jack Lemmon og Tony Curtis sem hét The Great Race. Myndin fjallaði um kappakstur yfir þrjár heimsálfur í upphafi síðustu aldar. Ég þykist nokkuð viss um að þetta er ein af þessum sakleysislegu grínmyndum sem eru nákvæmlega ekkert fyndnar lengur - en í minningunni er hún skemmtileg. Nú velti fyrir mér hvort Gumball 3000 kappaksturinn sé eitthvað í líkingu við þetta, fullur af rómantík, hetjudáðum og glæsimeyjum, ökuþórum sem keyra yfir reginfjöll eða festa bíla sína í miðjum eyðimörkum, eða hvort þetta sé bara eitthvert dæmi fyrir nýríku Nonnana til að geta borist á? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun