Íraksstríðið jók hagnað BAE 13. september 2006 16:54 A380 risaþota. BAE átti 20 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi Airbus, sem framleiðir risaþoturnar.
Breska félagið BAE Systems (BAE), stærsti hergagnaframleiðandi í Evrópu, skilaði 405 milljóna punda eða tæplega 54 milljarða íslenskra króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 28 prósenta meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra og umfram væntingar. Ástæðan eru aukin kaup bandaríska hersins á herbílum til nota í Írak. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 317 milljónum punda eða rúmum 42 milljörðum króna. Greiningaraðilar bandarísku fréttaveitunnar Bloomberg bjuggust hins vegar við 354 milljóna punda eða 47 milljarða króna hagnaði. Tekjur jukust um 21 prósent á tímabilinu og námu 8,21 milljarði punda. BAE átti 20 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus, en ákvað fyrr í þessum mánuði að selja hann til móðurfélagsins vegna ítrekaðra tafa á framleiðslu A380 risafarþegaþotanna. Söluandvirði hlutanna verður notað til að styrkja framleiðslu félagsins frekar í stað þess að einblína á erfiða flugvélaframleiðslu, að sögn BAE.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira