Formúla 1

Massa segir Ferrari ekki hafa forskot

Felipe Massa, annar ökumanna Ferrari í formúlu 1 kappakstrinum, segir að lið hans muni ekki hafa eins mikið forskot á næsta tímabili eins og margir vilja halda þar sem það hafi reynslu síðustu ára af dekkjum frá Bridgestone. Flest önnur lið formúlunnar hafa notað Michelin en þurfa að snúa sér að Bridgestone eftir að fyrrnefnda fyrirtækið hætti að framleiða dekk fyrir formúluna.

“Dekkin frá Bridgestone í ár eru allt öðruvísi en þau sem við vorum með í fyrra. Þess vegna er þetta algjör nýjung fyrir öll lið, þar á meðal Ferrari. Við höfum ekkert forskot vegna þessa,” segir Messi.

“Öll lið hefja keppni á næsta tímabili frá sama punkti,” bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×