Hagnaður FL Group 11 milljarðar króna 13. nóvember 2006 10:26
FL Group skilaði rétt tæpum 11 milljörðum króna í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tæpa 6,6 milljarða krónur í fyrra. Hagnaður félagsins á þriðja ársfjórðungi nam 5,25 milljörðum krónum miðað við rúma 4,6 milljarða krónur í fyrra.Í uppgjöri FL Group kemur fram að hagnaður fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins hafi numið 11,3 milljörðum króna sem er 40 prósenta aukning á milli ára. Hagnaðurinn á fyrstu 10 mánuðum ársins nemur hins vegar 36,1 milljarði króna.Bókfært eigið fé FL Group við lok þriðja ársfjórðungs nam 112,2 milljörðum króna samanborið við 74 milljarða í árslok. Eiginfjárhlutfall félagsins við lok tímabilsins er 48,9 prósent, að teknu tilliti til fjármögnunar á fyrirframgreiðslum vegna kaupa á Boeing 737 800 flugvélum, að því er segir í uppgjörinu. Handbært fé í lok þriðja ársfjórðungs nam 16,2 milljörðum króna miðað við 10,3 milljarða krónur í lok síðasta árs. Afkoma Icelandair Group fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) fyrstu níu mánuði ársins nam 5,7 milljörðum króna. Á þriðja ársfjórðungi nam EBITDA 4,4 milljörðum króna og er það í samræmi við væntingar. Öll hlutabréf FL Group í Icelandair Group seld á þriðja ársfjórðungi. Haft er eftir Hannesi Smárasyni, forstjóra FL Group, að hagstæður rekstur félagsins á þriðja fjórðungi ársins sé fagnaðarefni. „Þetta var viðburðaríkur tími í sögu félagsins og enn og aftur tókst vel til við rekstur, fjárfestingar og fjárstýringu. Útgáfa nýrra hluta í FL Group í tengslum við kaup á hlutum í Straumi-Burðarási hefur styrkt eiginfjárstöðu félagsins verulega. Rekstur Sterling er á réttri leið og við teljum horfur í rekstri þess jákvæðar. Það er þess vegna ljóst að framundan eru spennandi tímar fyrir FL Group enda hefur félagið skapað sér trausta umgjörð til að takast á við ný verkefni," segir Hannes.Tilkynning FL Group
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira