Fastir pennar

Breytingar

Eins og menn sjá hafa orðið miklar breytingar hér á Vísi. Ég tel að þetta muni vera til bóta, gamla útlitið var þunglamalegt og með því fylgdi talsvert af efni sem var orðið úrelt, efnisþættir sem ég nennti ekki að uppfæra. Nú held ég einungis eftir dálknum sem hefur yfirskriftina Pistlar, en þá mun ég að vanda setja inn svo gott sem daglega.

Brotasilfur fær einnig að lifa áfram en þar skrifa ég væntanlega stuttar greinar um bækur, tónlist og annað menningartengt.

Hið vinsæla tenglasafn verður áfram hér á síðunni þótt það hafi dottið út í morgun. Ég hef orðið var við að margir nota það á ferð sinni um vefinn. Reyni líka að uppfæra það eins samviskusamlega og ég get, taka út dauða tengla og bæta inn nýjum, sérstaklega nú í prófkjörsvertíðinni.

Silfrið verður svo auðvitað áfram í Veftívíinu. Unnið er í að gera það þægilegra í notkun. Margir eru steinhættir að horfa á svona þætti í sjónvarpi. Fjölmiðlanotkunin er að breytast verulega. Samt halda menn áfram að mæla sjónvarpsáhorf með gamla laginu.

Mér finnst mikilvægt að eldra efni sé aðgengilegt hér. Þó ekki sé nema til þess að hægt sé að reka mig á gat með einhverju sem ég skrifaði fyrir mörgum árum og er í algjöru ósamræmi við það sem ég er að segja núna. Best væri náttúrlega ef hægt væri að nálgast greinar frá þesssum rúmlega þremur árum sem ég hef verið hér á Vísi - gamla efnið frá árum mínum á Strikinu er víst kirfilega lokað og læst.

Njótið vel.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×